Þá er nú afmælisvertíðin gengin í garð. Aron Már frændi átti afmæli í gær. Blessað barnið hann Lúlli litli á svo afmæli á morgun og svo er það tvöfalt á mánudaginn. Thelma Rún frænka Unnar á afmæli sem og undirritaður.
Annars náðum við að koma okkur heim frá Carnoustie eftir vel heppnaðan lokadag á British Open. Það var gaman af því að sjá þessa kappa þó svo að Garcia eða Romero hefðu mátt vinna frekar en blessaður Harrington.
Annars fara kannski að koma fleiri myndir.
Kv.
Doddi

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim