Nýjar myndir komnar!
Sé að Egill Helga og Hannes Hólmsteinn eru ekki sammála um ágæti vinnuframlags í USA og Evrópu. Styttri vinnuvika og lengra sumarfrí eru normið í Evrópu í samanburði við USA. Ef ég man rétt þá hefur meðalvinnuvika á Íslandi hækkað úr 42 tímum í 53 tíma síðastliðin 10 ár. Þetta er almennilegt! Gaman að hugsa til þess þegar maður er að skella sér aftur á vinnumarkaðinn.
Krónan aftur farinn að veikjast. Það er ágætt. Stórtíðinda jafnvel að vænta.
Kv.
Doddi

4 Comments:
Til lukku með daginn gamli minn....maður er nú vanur að fá KÖKU á þessum degi!! Vona að þú hafir bakað eina fyrir Unni ;-)
Hlakka til að stórtíðindin verði að veruleika!
Besta kveðja úr kökulausa SPM
Dóra
By
Nafnlaus, At
11:34 AM
Til hamingju með daginn vinur!
Við erum að pakka saman og kveðja fjölskylduna, erum í næturflugi.
Ég hringi í þig við fyrsta tækifæri.
By
Sindri, At
1:57 PM
Sæll Doddi,
nú þarftu að skreppa á klakann til að verja titilinn Bifrastarkylfingurinn!! Mótið fer fram 11. ágúst. Hvað er mailið hjá þér?
kveðja,
Hermann Guðmundsson
hermann.gudmundsson@internet.is
By
Hermann, At
3:55 PM
Fékkstu ekki örugglega SMS-ið frá mér pungur?
Lúlli
By
Nafnlaus, At
9:16 PM
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim