Enska deildin byrjuð. Strax eftir fyrstu umferð verð ég líklegast að finna mér nýtt lið til að styðja. Markalaust jafntefli er ekki ásættanlegt gegn liði með tæplega 20% af byrjunarliðinu frá Íslandi.
Sláandi niðurstöður í ritgerðinni. Módelið sem ég er búinn að byggja hefur sterkari skýringarkraft með markaðsvirði eiginfjár en ekki bókfærðu virði. Þetta er undarlegt þar sem fjármálastjórar segjast ákvarða skuldsetningarhlutfall út frá bókfærðu virði. Vonandi að þetta geti skapað líflega umræðu!
Kv.
Doddi

3 Comments:
Bara benda þér á að mínir menn eru komnir með 3 stig.
Takk,takk.
Kveðja,
Lúlli.
By
Nafnlaus, At
10:52 PM
Ég hefði nú gefið mikið fyrir að vera mér þér fyrstu mínútuna af þeim leik!
Kv.
Doddi
By
Nafnlaus, At
8:20 AM
Vilt þú sem sagt meina að ákvarða mætti skuldir sem hlutfall af heildarfjármagni út frá markaðsvirði eiginfjár?
NEI..djöfullinn ég ætlaði að reyna að líta út fyrir að vera gáfaður. Hættu að halda með Man Utd eða ég d*** þig!
By
Sindri, At
12:11 PM
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim