Reykjavík

Click for Edinburgh, United Kingdom Forecast

miðvikudagur, ágúst 08, 2007

Var að fletta í gegnum "The Season 2007/08" þar sem fjallað er um ensku deildina og tímabilið framundan. West Ham (eða The Hammers) fá nokkra bita. Fyrst er það "Meet the owners ...". Þar er saga Björgólfs Guðmundssonar rakin í örstuttu máli. Endað er á Status: "Bjorgolfur is not very good at reading the small print" (eða: Björgólfur er ekki mjög góður að lesa smáa letrið).

Annars punktur tengdur þessu Tevez (og ég man ekki hvað hinn heitir) máli er gælunafnið The Hammers en þessi bæklingur vill meina að The Shammers væri meira við hæfi.

Kv.
Doddi

1 Comments:

  • Það er ekkert að marka það sem tjallinn segir. Þeir eru sérfræðingar í að búa til vandamál í kringum fótboltann. Persónulega vona ég að Hamrarnir standi sig vel í vetur og ekki laust við að maður haldi dálítið með þeim miðað við meðferðina sem þeir hafa fengið. Það er kannski rétt að benda á að félagið var búið að signa þessa blessuðu Argentínumenn áður en okkar menn keypta það.

    Lúllarinn

    By Anonymous Nafnlaus, At 9:19 PM  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim