Reykjavík

Click for Edinburgh, United Kingdom Forecast

þriðjudagur, október 30, 2007

Jæja, ég verð að viðurkenna það að ég hef ekki litið við þessu blessaða bloggi í fleiri mánuði. Enda var það svo sem fyrst og fremst búið til svo við gætum frætt fjölskyldu og vini um veru okkar í Edinborg.

En það er víst svo að við eigum eitthvað af vinum erlendis og þótt við séum nú sest að á klakanum í bili þá hittum við þá víst jafn lítið. Þannig að það er bara sjálfsagt að skrifa nokkrar línur hér núna.

Við erum sem sagt flutt til Íslands eftir ágætis dvöl í hinni yndislegu Edinborg. Reyndar er nú verið að plana smá heimsókn þangað út í nóvember til að hitta vini og ná í skírteinin sem við drekktum okkur í vinnu til að fá. Mikið verður gott að koma þarna núna og hí-a á þá sem byrjuðu í haust því hvað maður öfundaði þessa sem maður mætti skælbrosandi með prófskírteinið sitt í fyrra.
Núna á maður eftir að geta notið jólamarkaðarins og maður getur fengið sér bjór án þess að fá samviskubit eða reyna að ná síðasta strætó heim til að varast óæskilegar afleiðingar og lágmarks framleiðni daginn eftir.

Doddi er nú reyndar laus úr klóm skólans en eitthvað sést kallinn nú lítið eftir að Kaupþing náði heljartökum á kappanum. Ég, aftur á móti, get bara hreinlega ekki stoppað mig og sit núna sem fastast við tölvuna við enn ein ritgerðarsmíðin. Og ekki er nú ritgerðarefnið af lakari endanum, evrópskur samborgararéttur. (ef einhver veit eitthvað um þetta fyrirbæri þá eru allar upplýsingar vel þáðar).

En það að ég sé farin að blogga er kannski merki um að það fer að styttast í skil og ég eigi að vera að gera eitthvað allt annað... sem er satt.

Bið að heilsa í bili,
UK

2 Comments:

  • Ég er afar þakklátur fyrir þessa færslu.

    By Blogger Sindri, At 11:25 PM  

  • Hahaha þetta er alveg að ganga eftir ;)

    Kveðja,
    Guðrún.

    By Anonymous Nafnlaus, At 4:19 PM  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim